Athugið: Nýjar fréttir og viðburðir birtast nú eingöngu á island.is/s/rannis

Janúar 2026

janúar 2026

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Á döfinni

eTwinning á Íslandi leitar að sendiherrum

  • 1.3.2026, Umsóknarfrestur

Ertu virk(ur) í eTwinning og nýtir stafrænar aðferðir markvisst í kennslu? Hefurðu áhuga á að styðja við kollega þína, deila hugmyndum og hvetja til skapandi samstarfs – bæði hér heima og víðs vegar um Evrópu? Þá gæti eTwinning sendiherrastarf verið næsta skref fyrir þig.

eTwinning hjá Rannís leitar að nýjum eTwinning sendiherrum frá og með 2026 til að ganga til liðs við öflugt sendiherrateymi.

Sérstaklega er leitað að sendiherrum á Austurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum – en allar umsóknir eru hjartanlega velkomnar.

Umsóknarfrestur er til 1. mars 2026.
Umsókn með kynningarbréfi og ferilskrá sendist á etwinning@rannis.is


Hvað gerir eTwinning sendiherra?

Sendiherra er kennari sem er virkur í eTwinning, styður kollega, heldur kynningar og hjálpar til við að efla alþjóðlegt samstarf í skólum. Hlutverkið felur einnig í sér þátttöku í norrænu og evrópsku tengslaneti.

Hver getur sótt um?

Við leitum að kennurum sem:

  • Starfa í leik-, grunn- eða framhaldsskóla á Íslandi.
  • Hafa tekið þátt í a.m.k. tveimur eTwinning verkefnum.
  • Þekkja vel eTwinning vefsvæðið og hafa góða reynslu af notkun þess.
  • Sjá tækifæri í alþjóðlegu skólasamstarfi og nýta stafræna tækni í kennslu.
  • Hafa tengsl við skólasamfélagið og önnur menntasamtök þar sem þeir geta kynnt eTwinning.
  • Hafa reynslu af skólaþróunarverkefnum og breytingarvinnu innan skólakerfisins.
  • Vilja vinna með skólastjórnendum og samstarfskennurum og vera hvatningarafl fyrir nýsköpun.
  • Hafa reynslu af þátttöku í eTwinning námskeiðum eða faglegum hópum.
  • Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af alþjóðasamstarfi í skólastarfi, svo sem í Nordplus eða Erasmus+ verkefnum.
  • Eru tilbúnir til að halda vinnustofur, upplýsingafundi og skrifa greinar um eTwinning, auk þess að taka þátt í viðburðum á vegum Rannís.
  • Geta veitt stuðning við að finna samstarfsaðila og hefja eTwinning verkefni.
  • Hafa góða kunnáttu á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.

Skilyrði og stuðningur

eTwinning sendiherrar eru ekki starfsfólk Rannís, en fá styrk fyrir störf sín í formi greiðslu á hverri önn. Styrkurinn styður við verkefni sendiherrans, svo sem að halda kynningar, veita ráðgjöf og stuðning, og taka þátt í þjálfun og fundum.

Forsenda þátttöku er að skólastjórnendur séu samþykkir sendiherrastarfinu og styðji við þau verkefni sem því tengjast. Sendiherrastarfið er skuldbinding til eins árs í senn. Sendiherrar taka yfirleitt þátt í árlegum fundi Landskrifstofu eTwinning og geta einnig átt kost á að sækja norrænar og evrópskar ráðstefnur og fundi.

Við val á eTwinning sendiherrum er tekið mið af því á hvaða landsvæði umsækjendur starfa, til að tryggja að hvert landsvæði á Íslandi hafi virkan sendiherra sem getur stutt við skólasamfélagið á svæðinu.

Ef þú hefur spurningar, vinsamlegast hafðu samband við okkur á etwinning@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica