Stjórn og skipulag
"Ráðherra skipar bókasafnaráð til fjögurra ára í senn. Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna tilnefna hvort sinn fulltrúa í ráðið, Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, tilnefnir tvo fulltrúa ólíkra flokka bókasafna, og einn fulltrúi er skipaður án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ekki er heimilt að skipa sama mann aðalfulltrúa í bókasafnaráði lengur en tvö samfelld starfstímabil. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi stjórnarmanna." ( bókasafnalög )
Landsbókavörður og forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands sitja fundi bókasafnaráðs með málfrelsi og tillögurétt.
Bókasafnaráð setur bókasafnasjóði úthlutunarreglur sem ráðherra staðfestir.
Bókasafnaráð 2025 - 2029
Nefndarmenn