Æskulýðssjóður, seinni úthlutun
Æskulýðssjóði bárust alls 23 umsóknir um styrk vegna umsóknarfrests 15. október 2025.
Mennta og barnamálaráðuneytið hefur að tillögu stjórnar Æskulýðssjóðs ákveðið að styrkja sex verkefni að upphæð 5,2 milljónir króna.
Að þessu sinni var sérstök áhersla lögð á að styrkja verkefni sem byggja á samtali ungs fólks um samkennd, inngildingu og forvarnir gegn áhættuhegðun.
Eftirtalin verkefni fengu styrk:
| Nr. | Nafn umsækjanda | Heiti verkefnis | Sótt um | Tillaga |
| 252337-2001 | Kristileg skólahreyfing | Þjálfun í viðburðastjórnun | 750.000 | 750.000 |
| 252349-2001 | Skátafélagið Kópar | Námsefni fyrir sjóskáta | 460.000 | 460.000 |
| 252355-2001 | Alþjóð.ungmennsk. AUS | Skapandi samvera | 2.095.000 | 1.335.000 |
| 252538-2001 | Ungikór-Lands.samband barna og unglingakóra | Leiðtogaþjálfun sjálfboðaliða | 785.000 | 785.000 |
| 252359-2001 | Æskulýðsvettvangurinn | Sjálfboðaliðar og kvíði barna | 1.500.000 | 1.500.000 |
| 252360-2001 | KFUM og KFUK | Heimurinn frá nýjum hæðum | 400.000 | 400.000 |
| Samtals úthlutað | 5.990.000 | 5.230.000 |
